Jónas Björgvinsson
Hljóðver.is er í eigu Jónasar Björgvinssonar. Hljóðverið hannaði hann sjálfur og smíðaði ásamt góðri hjálp frá vinum. Jónas hefur verið með annan fótinn í tónlist í gegnum tíðina. Hann stofnaði hljómsveitina Ummhmm í kringum útgáfu plötunnar Haust árið 1998 en platan inniheldur lög og texta Jónasar. Síðan hefur hann unnið við ýmiskonar hljóðvinnslu og tónsmíði. Jónas stundaði m.a. kontrabassanám við FÍH og er meðlimur í vestfirska rokkkórnum Fjallabræðrum.
Hljóðverið er staðsett miðsvæðis í Reykjavík. Húsnæðið nýtist mjög vel og er einkar notalegt og hlýlegt.Stjórnrýmið er með góðri vinnuaðstöðu og einnig þægilegri aðstöðu til hlustunar og til að slappa af eftir vel heppnaðar upptökur. Stjórnrýmið er afar vel hannað fyrir hljómburð og er með Dynaudio BM6A og Genelec monitorum ásamt því að vera með sérhönnuðum SUB bassa undir gólfinu í kjallara stjórnrýmis.
Þess vegna hentar hljóðverið einnig vel til masteringar á öllu stereo hljóði. Upptökurýmið hefur einkar hlýjan viðar sjarma sem skilar sér í gamaldags og hlýlegum hljómburði og þægilegri upplifun. Hljóðverið hentar vel umfangsminni verkefnum þar sem gott næði skapast og vinnufriður. Tónlistafólki þarf að líða vel og vera í skapandi umhverfi þegar það flytur tónlist sína. Þá eru atriði eins og hljómburður,góð lýsing, aðbúnaður og fl. hluti af upplifuninni og hefur áhrif á sköpunargleði listamanna. Þetta var Jónas með í huga þegar hann hannaði og smíðaði hljóðverið enda er hann sjálfur tónlistarmaður og mikill fagurkeri.
Helsti búnaður:
AD/DA:
UA Apollo
UA 471d
Preamps:
Focusrite ISA428 MkII
UA 471
UA Apollo
Art TPS ll
Monitor:
Genelec 8240A DSP
Dynaudio BM6A
SUB – Genelec 7060B
Vélb/Hugbúnaður:
Apple iMac 27″ 3,5 ghz Intel i7
Pro tools 11
Logic pro 8
Microphones:
Audio-Technica
AT-4051 2st
ATM-450
AT-4050
AT-4051b 2 stk
AT-2020 2stk
ATM250DE
Rode NTK
Rode Nt1
SE Electronics Gemini III
SE Electronics SE4 2stk
SE Electronics SE 2200a
Shure sm57
Og fl.